Póstlisti

Skráðu þig á póstlistann og fáðu upplýsingar um allt það helsta sem er að gerast hjá Leynileikhúsinu.

Vornámskeið 2012

Skráning á vornámskeið 2012 er hafin!

Skráningareyðublaðið er hér fyrir neðan. Vinsamlegast smelltu á krækjuna til að sækja word-skjalið. Svo er það fyllt út og sent til okkar í tölvupósti á netfangið info@leynileikhusid.is.

SMELLIÐ HÉR FYRIR SKRÁNINGAREYÐUBLAÐ (word)



Vornámskeið Leynileikhússins 2012 hefjast í byrjun febrúar
eins og síðustu ár. Námskeiðin eru 12 vikna löng og er einn tími á viku í samstarfsskólum Leynileikhússins. Önnin endar svo í atvinnuleikhúsi þar sem afrakstur vinnunnar er sýndur. Ungu leikararnir fá búning og leikhúsmálningu og aðstandendur geta komið og séð krakkana blómstra á sviðinu.

Við bjóðum upp á námskeið fyrir börn í 2.-10. bekk um allt höfuðborgarsvæðið.


Sjá stundatöflu fyrir nánari tímasetningar :Stundatafla vorannar 2012


Almenn námskeið standa yfir í 12 vikur og er hver tími 60 mínútur. Námskeiðinu lýkur svo með sýningu í leikhúsi. Verð kr. 24.400.

Framhaldsnámskeið standa yfir í 12 vikur og hver tími 90 mínútur. Námskeiðinu lýkur svo með sýningu í leikhúsi. Verð kr. 29.900.


Leynileikhúsið tekur á móti frístundakortinu í Reykjavík. Þá geta fjölskyldur í Garðabæ nýtt hvatapeninga í námskeiðin. Einnig niðurgreiðir ÍTK námskeiðagjöldin að hluta fyrir íbúa Kópavogs.

Athugið að nemendur geta stundað nám í hvaða skóla sem er og úr hvaða skóla sem er. Nemendur eru ekki bundnir við að fara á námskeið í eigin skóla. Eins geta nemendur úr skólum sem Leynileikhúsið er ekki til staðar sótt námskeið í hvaða skóla sem er.


Skólar sem við munum starfa í á haustönn 2011:

Kársnesskóli Kópavogi


Seljaskóli

Rimaskóli

Vesturbæjarskóli

Langholtsskóli

Flataskóli Garðabæ


Grunnskóli Seltjarnarness


Laugarnesskóli


Hvassaleitisskóli

Snælandsskóli í Kópavogi


Nánar um námskeiðin:


Öll leiklistarnámskeið Leynileikhússins byggjast fyrst og fremst upp á mottóinu „GLEÐI“. Þetta þýðir að öll kennsla og sem fer fram í leiklistartímanum er gerð á uppbyggilegan og jákvæðan hátt að hálfu kennara og samnemenda. Með þetta mottó að leiðarljósi fara nemendur í grunnatriði í leiklist með hjálp leikja. Farið er í mikilvæg atriði eins og einbeitingu, gefa skýr skilaboð, hlustun, samvinnu og leiklistarsköpun.


Þegar líða tekur á námskeiðið eru þessi grunnatriði færð yfir í spunavinnu sem á endanum skilar sér í lokasýningu sem nemendur sýna fyrir aðstandendur. Lokasýningin er því byggð upp nær alfarið á spuna og sköpunarkrafti nemenda sem kennari aðstoðar við að púsla saman í leikverk þar sem allir fá að njóta sín á sinn hátt.

Framhaldsnámskeið Leynileikhússins
eru byggð upp á sama hátt en þau eru miðuð við að nemendur hafa farið á a.m.k. tvö almenn leiklistarnámskeið. Farið er dýpra í leiklistarvinnuna, persónusköpun og tæknileg atriði. Á meðan almennu námskeiðin eru 12 klst í kennslu eru framhaldsnámskeiðin 18 klst.


Ef spurningar vakna er einnig hægt að senda okkur tölvupóst á info@leynileikhusid.is eða hringja í síma 864-9373.

Skoðanakönnun

Hvað viltu helst gera á nýju ári?




Leynileikhúsið – Grettisgötu 81, 101 Reykjavík – S: 864-9373 / 551-1742 - info@leynileikhusid.is