Póstlisti

Skráðu þig á póstlistann og fáðu upplýsingar um allt það helsta sem er að gerast hjá Leynileikhúsinu.

Fréttir - FLATASKÓLI Í GARÐABÆ OG GRUNNSKÓLI SELTJARNARNESS!

FLATASKÓLI Í GARÐABÆ OG GRUNNSKÓLI SELTJARNARNESS!

Leynileikhúsið tilkynnir með stolti tvo nýja grunnskóla sem hafa bæst í hóp
hinna frábæru skóla sem Leynileikhúsið á í samstarfi við.
Á haustönn bjóðum við í fyrsta skipti upp á námskeið í Flataskóla Garðabæ og í Grunnskóla Seltjarnarness. Við erum himinlifandi yfir þeim frábæru viðtökum sem þessir skólar hafa sýnt okkur. Leynileikhúsið er nú með leiklistarnámskeið í 9 grunnskólum á öllu höfuðborgarsvæðinu. Markmið Leynileikhússins er að efla leiklistarkennslu á Íslandi og gefa sem flestum kost á því að stunda leiklist frá unga aldri. Samstarf við alla þessa framúrskarandi skóla er gundvallaratriði í þessu markmiði okkar. Við erum stolt af litla fyrirtækinu okkar og vonum að sem flestir nýti sér þjónustuna.

Hægt er að fá upplýsingar um hvenær við erum með námskeið í nýju skólunum hér.

Smellið á hér til að fá nánari upplýsingar um námskeiðin

Skoðanakönnun

Hvað viltu helst gera á nýju ári?




Leynileikhúsið – Grettisgötu 81, 101 Reykjavík – S: 864-9373 / 551-1742 - info@leynileikhusid.is