Sigga Eyrún lærði leiklist í Guildford School of Acting í Bretlandi.
Hún hefur einnig lokið námi í söng við Complete Vocal Institute í Kaupmannahöfn og lærði einnig söng hjá Elaine Overholt (raddþjálfari í söngleikjamyndunum Chicago og Hairspray) í Toronto í Kanada og í F.Í.H. og Söngskóla Reykjavíkur.
Hún hefur starfað sem leikari við Borgarleikhúsið (Grettir og Jesus Christ Superstar) og er fastráðinn leikari hjá Sýrlandi Hljóðsetningu við að talsetja teiknimyndir og auglýsingar.
Sigga leikur Silju vinkonu Lóu Ókurteisu í Söngvaborg 5.
Þeir sem sáu Jólaævintýri Smáralindar jólin 2007 muna kannski eftir henni sem Hönnu litlu sem bjargaði jólunum frá Trölla.
Hún hefur líka leikið í sjónvarpisþáttum og stuttmyndum bæði á Íslandi og í Kanada.
Síðast en ekki síst er hún annar helmingur dúettsins VIGGÓ OG VÍÓLETTA ásamt Bjarna Snæbjörnssyni. Þau eru Söngleikjakóngur og –drottning Íslands.