Bjarni Snæbjörnsson lauk leikaranámi með BFA gráðu frá leiklistardeild Listaháskóla Íslands 2007.
Vorið 2011 lauk hann einnig diplómanámi til kennsluréttinda frá LHÍ og er því einnig leiklistarkennari.
Hann lék hlutverk Péturs í Jesus Christ Superstar hjá Borgarleikhúsinu veturinn 2007-2008. Hann hefur leikið í sjálfstæðum verkefnunum Ástverk ehf. og Rándýrum. Þá lék hann hinn illa Sarínó sirkusstjóra í barnasöngleiknum Sarínó sirkusinn eftir Agnar Jón Egilsson.
Veturinn 2011-2011 verður annasamur því Bjarni mun stíga á stokk með eigið verkefni í Leikhúskjallaranum sem hluti af dúóinu Viggó og Víóletta. Það bleika gleðipar tekur nú höndum saman við Pörupilta og búa til sýninguna Uppnám sem frumsýnd er september. Eftir áramótin mun Bjarni svo leika í Vesalingunum á stóra sviði Þjóðleikhússins.
Bjarni hefur sungið á fjölmörgum tónleikum, lesið inn á teiknimyndir, leikið í auglýsingum og verið skemmtikraftur í veislum og við hin ýmsu tækifæri.
Bjarni hefur einnig leikstýrt tveimur söngleikjauppfærslum hjá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, fyrst Chicago árið 2009 og svo Déjà Vu árið2010 sem var frumsaminn söngleikur. Þá er Bjarni leiklistarkennari við nýstofnaða leiklistarbraut til stúdentsprófs við Fjölbrautaskólann í Garðabæ.
Bjarni hefur kennt börnum leiklist víða um land og hefur hann verið leiklistarkennari við Leynileikhúsið frá 2007. Árið 2009 tók Bjarni við rekstri Leynileikhússins þó Agnar Jón Egilsson, eigandi, sé aldrei langt undan.