Póstlisti

Skráðu þig á póstlistann og fáðu upplýsingar um allt það helsta sem er að gerast hjá Leynileikhúsinu.

Ástbjörg Rut Jónsdóttir

Ástbjörg Rut, sem er kölluð Adda Rut, lauk BA -námi í leiklist,
Fræði og framkvæmd vorið 2009 og fór í skiptinám til Glasgow í Royal Scottish Academy of Music and Drama (í Contemporary Performance Practise) í hálft ár. Hún er einnig með BA-gráðu í táknmálsfræði og táknmálstúlkun.

Adda Rut hefur táknmálstúlkað nokkrar leiksýningar, m.a. Skilaboðaskjóðuna í Þjóðleikhúsinu og Jesú litla í Borgarleikhúsinu. Hún hefur leikstýrt, bæði eigin verkum, einleiknum Mamma, ég?! og hjá Grunnskóla Borgarfjarðar. Einnig hefur hún tekið þátt í gjörningaverkum og sýnt eigin sólóverk.

Adda Rut hefur unnið mikið með börnum, bæði hjá ÍTR, þar sem hún sá m.a. um leiklistar-og listasmiðjur í frístundaheimilinu Frostheimum í einn og hálfan vetur og á sunnanverðum Vestfjörðum þar sem hún skipulagði og stjórnaði leiklistarnámskeiðum síðastliðið sumar.
Þar að auki hefur Adda Rut kennt leiklist við menntaskóla og táknmál í grunnskóla, starfað sem táknmálstúlkur, unnið við gerð kvikmyndar, unnið á leikskóla og við blómaskreytingar og garðyrkju.

Skoðanakönnun

Hvað viltu helst gera á nýju ári?




Leynileikhúsið – Grettisgötu 81, 101 Reykjavík – S: 864-9373 / 551-1742 - info@leynileikhusid.is